Það sem YouTube er að gera
Svona gerum við vefinn hraðari fyrir alla.
- Með stillanlegum bitahraða skiptum við öllum vídeóum niður í búta (yfirleitt
nokkurra sekúndna langa) fyrir allar tiltækar tegundir vídeógæða.
- YouTube greinir hversu hnökralaust vídeó eru spiluð og stillir gæði þeirra
samkvæmt tímabundnum breytingum á bandvídd eða netteppu. Þetta getur leitt til
fjöldamargra ákvarðana sem taka þarf til að finna út hvernig spila á eitt vídeó.
- Ef þú færir þig lengra frá Wi-Fi beininum geta gæði vídeósins farið
úr 720p í 480p eftir því sem merkið verður veikara.
- Við höfum þegar fjárfest milljónum Bandaríkjadala í bandvídd og því grunnneti sem
er nauðsynlegt til að netþjónustan þín hafi greiðan aðgang að þjónustu okkar.
- Við erum með opna samvinnustefnu fyrir innra netið okkar, sem þýðir að við erum í
beinu sambandi við netþjónustur sem geta tengst 70 stöðum okkar um allan heim án
endurgjalds.
- Þar sem við notum oft þjóna innan kerfis netþjónustunnar þinnar drögum við
gríðarlega úr fjarlægðinni sem vídeóið þarf að fara og minnkum þannig áhættuna á
teppu.
- Við erum sífellt að stilla grunnnet okkar og notum ítarlegar útreikningsaðferðir
til netumferðareftirlits til að endurbeina umferð á skjótan hátt ef nettenging fellur
niður, getan skerðist eða afköstin dvína.
- Líkt og aðrar þjónustur þjöppum við vídeógögnum til að hægt sé að senda þau um
internetið á áhrifaríkan hátt.
- YouTube vinnur stöðugt að því að auka straumspilunargæði vídeóa til að hægt sé að
senda eins lítil gögn og mögulegt er, fá sem mest út úr þeirri þjöppunartækni sem í
boði er og taka upp hanskann fyrir nýjar aðferðir.
- Við erum að þróa ný vídeósnið eins og WebM til að veita þér enn betri
skerpu með minni bandvídd.